Própýlen er litlaus gastegund með dálítið sæta lykt. Það er laust við eiturhrif en hefur væg, svæfandi áhrif. Própýlen er aukaafurð sem verður til við framleiðslu etýlens, t.d. sundrun, en fellur einnig til við olíuhreinsun. Mest af própýleni fer til efnaiðnaðarins. Própýlen má geyma á vökvaformi við stofuhita undir eigin gufuþrýstingi.
Eiginleikar própýlens eru mjög svipaðir eiginleikum própans. Þótt varmagildi þessara tveggja gastegunda sé í stórum dráttum það sama myndar própýlen stærri hluta af sínum hita í kjarnaloganum, en það gerir logann heitari og skilvirkari en própanloga.
Dæmi um einkaleyfisvarið nafn á própýleni er HPG, sem stendur fyrir High Purity Gas (háhreint gas). Própýlen er sprengifimt við þéttni á milli 2 og 10,5% í snertingu við loft.
Þar sem própýlen er þyngra en loft sígur gasleki niður að gólfi og ryður burtu lofti, en það veldur aukinni hættu á sprengingu eða köfnun. Súrefnisnotkun er venjulega um tvöfalt meiri en þegar um asetýlen/súrefni er að ræða.
Própýlen hentar við ýmiskonar súrefnisbrennslu aðferðir, svipað própani. Dæmi um þetta eru hitun með loga, rétting, lóðun/brösun og skurður. Própýlen er valkostur við própan í verkum þar sem gerðer krafa um mikla framleiðni.