Festu það. Loftræstu það. Virtu það.
Ef það er flutt og notað á réttan hátt, er asetýlen mjög örugg lofttegund. Engu að síður sýna rannsóknir okkar að margir notendur fylgja ekki viðmiðunarreglum um góðar starfsvenjur, sem leiðir til eftirfarandi mögulegra áhættuþátta:
Festu það.
Mörg ökutæki viðskiptavina eru ekki útbúin viðeigandi festingum til að koma í veg fyrir að hylki falli um koll eða færist til í ökutækinu. Þetta getur endað með eldsvoðum og líkamstjóni. Hættan kemur hér úr tveimur áttum. Á meðan á flutningi stendur, getur handfangið á loka hylkisins skollið í eitthvað sem opnar lokann. Þetta gerir gasi kleift að sleppa út, og getur valdið íkveikju eða sprengingu. Einnig eru hylkin mjög þung og munu ferðast á sama hraða og ökutækið. Ef ökumaður þarf að hemla skyndilega og hylkin eru ekki rétt fest munu þau kastast áfram og geta valdið alvarlegum skemmdum eða líkamstjóni.Loftræstu það.
Mörg asetýlen-hylki eru flutt í óloftræstum ökutækjum. Komi upp leki – sama hversu lítill hann er – getur gas safnast saman í ökutækinu og valdið íkveikju eða sprengingu. Áhættan margfaldast á langvarandi geymslutíma. Til dæmis skilja margir notendur – eftir að vinnudegi líkur – hylkin eftir í óloftræstum ökutækjum yfir nótt. Það gefur gaslekanum tækifæri til að byggjast upp með tímanum. Þessi hætta eykst svo enn meira þegar þrýstijafnarar eru notaðir til að loka fyrir gasflæði. Þrýstijafnarar geta auðveldlega lekið og því er nauðsynlegt að lokinn sé notaður í þessum tilgangi.Virtu það.
Asetýlen-hylki innihalda gljúpan massa og fljótandi aseton sem leysir upp lofttegundina. Ef hylki hefur verið flutt þarf að leyfa því að jafna sig í uppréttri stöðu á áfangastað. Það gefur fljótandi asetoninu tíma til að seytla aftur á réttan stað í gljúpa massanum. Sé það ekki gert getur það komið niður á gæðum þar sem að aseton-vökvi getur komist í gasið. Í mjög slæmum aðstæðum getur þetta orðið til þess að notkun hylkisins er ekki jafn örugg.