ACCURA®-hylkjaumsjónarkerfi

Hafðu umsjón með gashylkjunum þínum og hámarkaðu nýtingu

Full stjórn á gashylkjum á mismunandi stöðum

ACCURA®-hylkjaumsjónarkerfið er rakningarþjónusta á netinu sem sér þér fyrir öllum upplýsingum sem þú þarft til að halda utan um hylkin hjá fyrirtækinu þínu. Þökk sé einstökum ICC-merkingum Linde getur ACCURA® hjálpað þér að losna við gömul hylki, einfalda umsjón með hylkjabyrgðum, hafa yfirsýn yfir kostnað, fá nákvæmar notkunarskýrslur og margt fleira.


Ávinningur:

  • Aukin framleiðni: ACCURA®-hylkjaumsjónarkerfið veitir fljótt og auðveldlega aðgang að upplýsingum um viðskipti og hylki í fyrirtækinu og fyrir mismunandi starfsstöðvar, sé þess þörf. Þetta gerir þér kleift að hámarka skilvirkni og lágmarka vinnu við umsýslu, sem sparar þér tíma og peninga.
  • Aukið öryggi: ACCURA®-hylkjaumsjónarkerfið hjálpar þér að hafa alltaf æskilegan fjölda gashylkja á svæðinu – því færri gashylki, þeim mun öruggara er svæðið! Þú færð jafnframt yfirsýn yfir staðsetningu hylkja.
  • Aukin arðsemi: ACCURA®-hylkjaumsjónarkerfið bætir alla birgðastjórnun gashylkja innan fyrirtækisins. Gagnsæi eykur kostnaðarvitund, sem gerir þér kleift að hagræða í leigukostnaði. Skoðaðu línuritin til að fylgjast með hylkjastöðunni með hliðsjón af leigusamningunum þínum. Þú getur einnig fengið skýrslur um kostnað við gaskaup og -leigu.
  • Aukin gæði: ACCURA® -hylkjaumsjónarkerfið bætir skipulag, stjórnun og upplýsingagjöf um allar þarfir þínar hvað gas varðar.

Í þjónustugátt Linde, undir „Reikningurinn minn“, er að finna mikið af gögnum um bæði hylki og geyma

  • ● Hvað hylki varðar getur þú flett upp hylkjastöðu þinni og leigusamningum og fengið greiðan aðgang að afhendingarseðlum. Í geymastjórnuninni í þjónustugátt Linde sérðu núverandi stöðu geymisins, notkunarmynstur og sendingarstaði fyrir hvern geymi og staðsetningu.
  • ● Þessi þjónusta veitir þér nákvæmar upplýsingar um allt sem viðkemur þinni notkun á gasi.