Pappírslaus viðskipti

Linde Gas starfar í samræmi við markmið og stefnu fyrirtækisins í umhverfis- og loftslagsmálum og leggur áherslu á að minnka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar. Sem hluti af loftlagsaðgerðum fyrirtækisins er unnið markvisst að því að draga úr kolefnislosun, meðal annars með því að takmarka pappírsnotkun. 
Við munum því, í samræmi við stefnu okkar, hætta mánaðarlegri reikningaprentun þann 1. maí næstkomandi nema viðskiptavinir óski sérstaklega eftir prentuðum reikning.


Engin breyting er á því að kröfur eru sendar í netbanka.


Á heimasíðu á vef Linde Gas www.linde-gas.is , er hægt að skrá sig inn á heimasvæði þar sem er hægt að leggja inn pöntun, nálgast reikininga, afhendingarseðla og hylkjastöðu og prenta út.

Prentað eintak frá Linde Gas Ísland

Þeir viðskiptavinir sem óska sérstaklega eftir að fá prentaða reikninga póstlagða frá Linde Gas geta sent tölvupóst á sala.is@linde.com eða hringt í þjónustuverið í síma 577-3000 frá 09-13 alla virka daga.