Súrefnisdreifibúnaður AGA fyrir ferskvatn er sparneytinn, ákaflega áreiðanlegur og mjög einfaldur í uppsetningu.
Þar sem við erum sífellt að þróavörur okkar erþrýstingsdreifibúnaðurinn nú kominn með nánast 100% virkni.
Háþrýstidreifibúnaður - SOLVOX® C
SOLVOX ® C keilur eru sérhannaðar til að auka styrk gastegunda í vatni mjög verulega.Í hefðbundnum rekstri er skilvirkni í gasflutningi nánast 100%.Keilan virkar á afar einfaldan hátt:Þegar vatn og gas streyma inn að ofan þvingar vatnsbunan vatnið til að blandast af þrótti saman við súrefnisloftbólurnar og myndar þannig sterk, sértæk skil og mikinn óróa efst íkeilunni.
Hraðinn minnkar eftir því sem neðar dregur íkeilunni.Þar geta jafnvel mjög litlar gasloftbólur sem ekki eru að fullu uppleystar stigið upp í gegnum vatnið sem streymir niður og það leiðir til þess að aðeins loftbólur sem eru alveg lausar við vatn streyma úr keilunni neðst.
Þar sem hægt er að nota SOLVOX ® C keilur við hækkaðan þrýsting má auka styrk uppleysts súrefnis talsvert yfir mettunarmörk.Súrefniskeilur eru mjög mikið notaðar í fiskeldi, enda sérlega traustar, skilvirkar og einfaldar í uppsetningu.Þessar keilur eru gerðar úr gleri, trefjum og hertu plasti (GRP) og eru CE-merktar.
Hringrásarbúnaður fyrir keiluna – SOLVOX® CV
SOLVOX ® CV er viðbótarkerfi til að auka súrefnismettun SOLVOX ® C keilna og gefur möguleika á allt að 50% stærri súrefnisskammti án þess að auka þurfi vatnsstreymið eða nota meiri orku.SOLVOX ® CV notar einkaleyfisskráðan spíss(venturi nozzle) til að leiða súrefnið sem safnast fyrir efst í keilunni aftur inn í vatnsleiðsluna.Hægt er að setja búnaðinn upp án nokkurrar vinnslustöðvunar eða tímataps.SOLVOX ® CV búnaðurinn er festur beint á vatnsleiðslu keilunnar með flans.Við það má auka vatnsflæðihraðann inn í keiluna um allt að 25% yfiruppgefnu magni, og fá þannig 25% aukningu á súrefni til viðbótar.
SOLVOX ® CV – aukinn áreiðanleiki og meiri sveigjanleiki í framleiðslu
Með því að auka súrefnismettun færðu mun meiri sveigjanleika og betri stjórn á framleiðslunni.Það styrkir reksturinn og gerir hann sveigjanlegri.
Hönnun SOLVOX ® CV búnaðarins samhliða SOLVOX ® C tryggir allt að 100% súrefnisupplausn.Úttaksvatnið sem streymir úr búnaðinum má metta með súrefni í mjög miklum styrk án þess að nokkrar óuppleystar súrefnisloftbólur tapist úr hringrásinni.Nákvæmhönnun kerfisins hindrar að loftbólur og gasgöt myndist í dreifingarleiðslum í vinnslustöðinni.Til að þetta takist þurfum við að eiga náið samstarf við viðskiptavini okkar við hönnun, þróun og uppsetningu kerfisins sem heildar.