Þó nokkrar hagnýtar ábendingar og viðmiðunarreglur eru til sem notendur geta fylgt til að draga úr – eða jafnvel – útrýma hættunni á líkamstjóni, sínu eigin eða annarra, við flutning og meðhöndlun asetýlens. Þær eru útlistaðar í eftirfarandi upptalningu:
Passaðu að lokinn sé lokaður fyrir flutning og þegar hylkið er í geymslu.
Aldrei skal treysta á gasbúnað svo sem blússlampa og þrýstijafnara til að loka fyrir gasið.
Flyttu hylkin í viðeigandi loftræstu ökutæki, helst opnum bíl eða pallbíl, eða loftræstu gashólfi í lokuðum bíl.
Passaðu að hylkin séu vel fest og að lokar séu öruggir á meðan á flutningi stendur.
Affermdu hylkin um leið og komið er á áfangastað, og ef þau eru geymd í láréttri stöðu skaltu leyfa þeim að standa lóðrétt í a.m.k. 30 mínútur fyrir notkun.
Aldrei geyma hylki með eldfimu innihaldi næturlangt í óloftræstum ökutækjum.
Fylgdu alltaf öllum gildaldi reglum um flutning hylkja í ökutækjum og örugga affermingu og geymslu asetýlen hylkja. Þetta getur náð yfir áþreifanlegar ráðstafanir s.s. merki á ökutækinu, slökkvitæki, öryggisupplýsingar í ökutækinu og öryggisþjálfun fyrir ökumann.
Mundu: Festu það. Loftræstu það. Virtu það.